13% fleiri gistinætur hótela í maí
04.07.2014
Hagstofan hefur birt tölur um gistinætur á hótelum í maí. Sem fyrr vekur Hagstofan athygli á að tölurnar ná eingöngu til hótela sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast þannig hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.
Gistinætur á hótelum í maí voru 180.880 sem er 13% aukning miðað við maí 2013. Gistinætur erlendra gesta voru 80% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 13% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 11%. Sjá nánar í töflunni hér að neðan.