Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálastofu og kynning á umhverfisviðmiðum VAKANS
Þann 15. desember næstkomandi kl 15 mun Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra afhenda umhverfisverðlaun Ferðamálastofu á Hótel Natura (Loftleiðir). Við sama tækifæri verður umhverfisviðmiðum nýja gæða- og umhverfisverkefnisins VAKANS einnig hleypt af stokkunum. Af þessu tilefni býður Ferðamálastofa samstarfsfélögum í ferðaþjónustunni til jólasamverustundar.
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu
Umhverfisverðlaun Ferðamálastofu hafa verið veitt árlega frá árinu 1995 og er tilgangur þeirra að beina athyglinni að þeim ferðamannastöðum eða fyrirtækjum í ferðaþjónustu sem sinna umhverfismálum í starfi sínu og framtíðarskipulagi. Auglýst var eftir tilnefningum í september sl. og bárust margar góðar ábendingar. Í fyrra fengu farfuglaheimilin í Reykjavík verðlaunin.
Gæða- og umhverfiskerfið VAKINN
Ferðamálastofa, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtök Íslands hafa um nokkurt skeið unnið að samræmdu gæða- og umhverfiskerfi fyrir íslenska ferðaþjónustu. Kerfið nefnist VAKINN og verður innleitt á komandi ári. Meginmarkmið kerfisins er að auka og efla gæði í ferðaþjónustu á Íslandi með handleiðslu og byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja hér á landi.
Umhverfiskerfið - gull, silfur , brons
Umhverfishluti kerfisins byggir á sjö höfuðflokkum:
- Stefnumótun og starfshættir
- Innkaup og auðlindir
- Orka
- Úrgangur
- Náttúruvernd
- Samfélag
- Birgjar og markaður.
Í framhaldi af úttekt er þjónustuaðilunum raðað í 3 flokka, gull, silfur og brons.
Fyrirtæki geta byrjað að vinna að umhverfisviðmiðum
Á fundinum verða umhvergisviðmið Vakanns kynnt en til að öðlast gull eða silfur þá þurfa að hafa farið fram reglulegar mælingar sem gerðar hafa verið í 6-12 mánuði og sýna árangur á a.m.k. einum þætti sem getið er um í aðgerðaáætlun fyrirtækisins á sviði umhverfismála. T.d: a) Minnkun úrgangs. b) Sparnað á rafmagni. c) Sparnað á heitu vatni. d) Sparnaði á eldsneyti. Eftir að viðmiðin hafa verið kynnt, þ.e. eftir fundinn, geta fyrirtæki þannig byrjað að kynna sér umhverfisviðmiðin og sett af stað mælingar á fyrrtöldum þáttum. Kerfið verður formlega opnað í febrúar næstkomandi og eftir það er hægt að sækja um aðild.
Dagskrá:
- Ávarp
– Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri - Kynning á umhverfisviðmiðum Vakans
- Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður hjá Ferðamálastofu - Afhending umhverfisverðlauna Ferðamálastofu
– Katrín Júlíusdóttir ferðamálaráðherra
*********
Boðið verður upp á léttar veitingar með jólaívafi í lokin.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið skraning@ferdamalastofa.is fyrir lok dags þann 14. desember næstkomandi.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest!
Með kveðju,
Starfsfólk Ferðamálastofu