Áning 2008 komin út
12.12.2007
Áning 2008
Gistibæklingurinn Áning er nú kominn út fjórtánda árið í röð. Í bæklingnum er að finna upplýsingar um næstum því þrjú hundruð gististaði, tæplega 100 tjaldsvæði og um 75 sundlaugar um land allt, segir í frétt frá útgefenda.
Áning kemur út í 55 þúsund eintökum á íslensku, ensku og þýsku. Bæklingnum er dreift ókeypis á öllum helstu ferðamannastöðum innanlands, á upplýsingamiðstöðvum, hótelum og gistiheimilum og víðar. Áningu er einnig dreift á meginlandi Evrópu frá skrifstofu Ferðamálastofu í Frankfurt og frá dreifingarmiðstöð í Frakklandi. Þá er Áningu einnig dreift um borð í Norrænu. Netútgáfu bæklingsins er að finna á www.heimur.is/world og www.icelandreview.com Útgáfufélagið Heimur hf. gefur bæklinginn út, ritstjóri er Ottó Schopka.