Auglýst eftir tilnefningum til Scandinavian Travel Award
17.01.2008
itb 004
Líkt og undanfarin ár verða Scandinavian Travel Award ferðaverðlaunin afhent á ITB-ferðasýningunni í Berlín í mars næstkomandi. Markmiðið er að verðlauna framúrskarandi nýjungar, góða þjónustu og árangursríka markaðssetningu í ferðaþjónustu Norður-Evrópu.
Verðlaunin veita einnig verðlaunahöfum aukna athygli fjölmiðla og staðfesta gildi þess að gera vel. Verðlauna-hafarnir geta nýtt sér þennan heiður í markaðssetningu og til að styrkja stöðu sína á Þýsklandsmarkaði.
Mynd: Frá ITB-ferðasýningunni.
Nú hefur verið auglýst eftir tilnefningum til verðlaunanna og er hægt að stinga upp á bæði sjálfum sér eða öðrum. Verðlaun eru veitt í tveimur flokkum:
- ?Nýjung? þar sem leitað er að árangursríkri nýjung í ferðamennsku á norðurslóðum. Til greina kemur nýstárleg vara, nýstárleg markaðssetning, nýstárleg þjónusta, viðskiptavinatengsl eða tæknileg nýjung.
- ?Árangur? þar sem leitað er að ?succes stories? úr geiranum. Vörur sem hafa til lengri tíma (a.m.k. frá 2004) haldið velli á markaðnum, sýnt stöðuga aukningu og eru þessvegna spennandi og til fyrirmyndar.
Nánari upplýsingar og umsóknarform eru í meðfylgjandi pdf-skjali.