Er þitt fyrirtæki á leið í VAKANN? - Námskeið
Ráðgjafafyrirtækið Thorp ehf býður nú upp ferðaþjónustufyrirtækjum á hnitmiðað, eins dags námskeið sem miðar að því að undirbúa stjórnendur fyrirtækja fyrir gæða- og umhverfiskerfið VAKANN. Undirbúningurinn felst í því að skoða, ræða og móta svör við nokkrum lykilspurningum í rekstri, eins og:
- Er stefna fyrirtækisins skýr?
- Er varan/þjónustan tilbúin?
- Er markhópurinn skýr, mælanlegur, þekktur?
- Eru gæðamál höfð í öndvegi?
- Hver eru markmið fyrirtækisins?
Allt eru þetta lykilspurningar, sem nauðsynlegt er að kunna skil á, ætli stjórnendur fyrirtækja að standast kröfur VAKANS, en ekki síður til að halda velli í sífellt harðnandi samkeppni.
Leiðbeinandi er Þorgeir Pálsson, sem hefur yfir 24 ára reynslu úr íslensku atvinnulífi, m.a. 9 ár hjá Útflutningsráði Íslands (nú Íslandsstofu). Þorgeir hefur unnið talsvert með ferðaþjónustufyrirtækjum og stýrði m.a. Speglinum, verkefni Íslandsstofu, 2011-2012.
Allar nánari upplýsingar veitir Þorgeir Pálsson í síma 899-0020. Einnig má senda post á thorp@thorpconsulting.is
Verð á einstakling er kr. 19.500. Innifalið eru námskeiðsgögn, hádegisverður og léttar veitingar. Fjöldi þátttakenda miðast við 15 manns að lágmarki. Námskeiðið fer fram á Grand Hótel. Stefnt er að því að fyrsta námskeiðið verði 14. mars.
Hefur þú og þitt fyrirtæki gagn af slíkum undirbúningi?
Grand Hótel, 14 mars, 2013, kl 09-17 !
Thorp ehf / Þorgeir Pálsson