Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgar áfram
Í september síðastliðnum fóru rúmlega 180 þúsund farþegar um Keflavíkurflugvöll, samkvæmt tölum frá flugvellinum, samanborið við tæplega 165 þúsund í september í fyrra. Fjölgunin nemur 9,4%.
Fjölgunin í september er í takt við þróun farþegafjölda fyrir árið í heild en frá áramótum hefur farþegum fjölgað um 10,21%. Tölurnar eru greindar niður eftir því hvort farþegar eru á leið til landsins, frá landinu eða hvort um áfram- og skiptifarþega (transit) er að ræða. Nokkur fækkun (9,5%) er í hópi ?transit-farþega? á meðan farþegum á leið til og frá landinu fjölgar um 14,3%, þannig að heildarfjölgunin það sem af er ári er 10,21%, sem fyrr segir. Nánari skiptingu má sjá í meðfylgjandi töflu.
|
Sept.06. |
YTD |
Sept. 05. |
YTD |
Mán. % breyting |
YTD % Breyting |
Héðan: |
78.197 |
688.420 |
71.675 |
602.072 |
9,10% |
14,34% |
Hingað: |
72.644 |
684.541 |
65.180 |
599.193 |
11,45% |
14,24% |
Áfram: |
4.339 |
25.305 |
1.605 |
10.627 |
170,34% |
138,12% |
Skipti. |
25.221 |
200.877 |
26.443 |
239.102 |
-4,62% |
-15,99% |
|
180.401 |
1.599.143 |
164.903 |
1.450.994 |
9,40% |
10,21% |