Ferðamálastofa birtir nýtt spámælaborð og gervigreindarspá um fjölda erlendra ferðamanna 2025 – 2027
Ferðamálastofa birtir nú í fyrsta sinn spá um fjölda erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll þar sem gervigreind er nýtt til spágerðarinnar. Gervigreind er m.a. notuð til að afla upplýsinga um breytur sem nýst geta sem grunnur spágerðar, vinna úr þeim og greina, velja úr tugum spálíkana þau líkön sem sýna bestu sögulegu spágetuna og nýta styrkleika einstakra líkana til að hámarka nákvæmni spáa hverju sinni. Ráðgjafarfyrirtækið Sumo Analytics vinnur þessar spár fyrir Ferðamálastofu.
Spáð um næstu 36 mánuði á mánaðarfresti
Spáin sem birtist nú er fyrir 36 mánaða tímabil, frá og með janúar 2025 til desember 2027, eða árin 2025 – 2027. Ný spá birtist í kringum 10. hvers mánaðar og eru spárnar hlaupandi, þannig að í febrúar verður birt spá fyrir tímabilið febrúar 2025 – janúar 2028 og svo koll af kolli. Þessi háa spátíðni ætti að tryggja kröfuhörðustu notendum þann tímanleika og lengd spáa sem þeir þurfa við sín verkefni.
Að neðan gefur að líta spána í þessum mánuði fyrir árin þrjú í heild, ásamt metnum efri og lægri mörkum árlega spágilda:
Hér má svo sjá mánaðaspána fyrir næstu 36 mánuði, frá janúar 2025 til desember 2027, ásamt árlegum samtölum:
Nýtt mælaborð gervigreindarspáa
Fyrir hinar nýju, mánaðarlegu gervigreindarspár hefur Ferðamástofasett saman sérstakt mælaborð sem nú er orðið virkt í Mælaborði ferðaþjónustunnar. Þar geta notendur nálgast á myndrænan og einfaldan hátt allar helstu upplýsingar um spárnar eftir mánuðum og árum. Hér að neðan má sjá mynd úr hinu nýja mælaborði gervigreindarspáa.
Lýsing á aðferðafræði gervigreindarspáa
Í mælaborðinu má einnig nálgast lýsingu á aðferðafræði spágerðar um fjölda erlendra ferðamanna með nýtingu gervigreindar. Nýting gervigreindar til spágerðar er tilraunverkefni hjá Ferðamálastofu og verður endurmetið eftir því sem reynsla fæst af því.
Spár Intellecon fyrir Ferðamálastofu til samanburðar
Ráðgjafarfyrirtækið Intellecon hefur síðustu misseri þróað hefðbundin, hagræn spálíkön fyrir Ferðamálastofu. Megináhersla þar hefur einnig verið á fjölda erlendra ferðamanna um Keflavíkurflugvöll en jafnframt hefur verið möguleiki á að spá fyrir um meðaleyðslu erlendra ferðamanna, meðaldvalartíma og fjölda gistinátta. Þann 13. janúar sl. birti Ferðamálastofa einmitt frétt um spá um fjölda ferðamanna fyrir 2025 – 2027 byggt á líkani Intellecon.
Nánari upplýsingar:
Jóhann Viðar Ívarsson, johann@ferdamalastofa.is