Ferðamálastofa til iðnaðarráðuneytisins
02.01.2008
![Höfuðstöðvar ferðamálaráðs](/static/news/42.jpg)
Höfuðstöðvar ferðamálaráðs
Nú um áramótin komu til framkvæmda ákvæði laga um breytingar á lögum um stjórnarráðið, sem alþingi samþykkti í sumar. Líkt og fram hefur komið voru málefni ferðaþjónustunnar meðal þeirra sem fluttust til innan stjórnkerfisins, frá samgönguráðuneytinu til iðnaðarráðuneytisins. Með þessu verður Ferðamálastofa ein af undirstofnunum iðnaðarráðuneytisins.