Gistinóttum fækkaði um 8% í apríl
Gistinætur á hótelum í apríl síðastliðnum voru 85.600 en voru 93.100 í sama mánuði árið 2009. Þetta kemur fram í gistináttatölum Hagstofunnar sem birtar voru í dag.
Fækkun gistinátta nær til allra landsvæða nema Norðurlands og Suðurnesja en þar fjölgaði gistinóttum milli ára. Á Vesturlandi og Vestfjörðum fækkaði gistinóttum um 26%, voru 2.300 samanborið við 3.100 í apríl 2009. Á Austurlandi fækkaði gistinóttum úr 2.300 í 1.900 og á höfuðborgarsvæðinu fækkaði gistinóttum úr 67.400 í 60.600 eða um 10% miðað við apríl 2009. Á Suðurlandi voru gistinætur svipaðar milli ára eða um 10.000 en á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum á milli ára, voru 7.000 samanborið við 6.500 í apríl 2009. Gistinóttum fjölgaði einnig á Suðurnesjum, voru 3.800 samanborið við 3.600 í apríl 2009.
Fækkun gistinátta á hótelum í apríl er eingöngu hægt að rekja til erlendra gesta, en gistinóttum þeirra fækkaði um 11% miðað við apríl 2009 á meðan gistinætur Íslendinga eru svipaðar milli ára.
2% fjölgun fyrstu fjóra mánuði ársins
Gistinætur fyrstu fjóra mánuði ársins voru 311.300 en voru 305.100 á sama tímabili 2009. Gistinóttum fjölgaði á Norðurlandi um 12%, á Suðurlandi um 6% og um 2% á Höfuðborgarsvæðinu samanborið við fyrsta ársþriðjung 2009. Á öðrum landsvæðum fækkaði gistinóttum milli ára, mest á Vesturlandi og Vestfjörðum um 14%. Fyrstu fjóra mánuði ársins fækkar gistinóttum Íslendinga um 1% á meðan gistinóttum útlendinga fjölgar um rúm 3% miðað við sama tímabil 2009.
Hagstofan vekur athygli á því að hér er eingöngu átt við gistinætur á hótelum, þ.e. hótelum sem opin eru allt árið. Til þessa flokks gististaða teljast hvorki gistiheimili né hótel sem eingöngu eru opin yfir sumartímann.