Ísland á EIBTM
15.12.2009
EIBTM09_1
EIBTM sýningin í Barcelona fór fram dagana 1.-3. desember 2009. Alls tóku 12 fyrirtæki þátt í sýningunni ásamt Ráðstefnuskrifstofu Íslands en EIBTM sýningin hefur stimplað sig inn sem einn helsta fagsýningin í Evrópu þegar kemur að ráðstefnu-, funda- og hvataferðamarkaðinum. Almenn ánægja var með sýninguna og greinilegt að þessi markaður er að taka við sér eftir lægð árið 2009.
Fyrirtækin sem tóku þátt voru: Atlantik, Iceland Travel, Snæland Grímsson. Reykjavík Incentives, Nordic Visitor, Portus, Icelandair, Grand Hótel Reykjavík, Icelandair Hotels / Hilton Reykjavík Nordica, Practical, Fjallamenn og Terra Nova Incentives. Hér að neðan eru nokkrar myndir frá sýningunni.