Kynningarfundir um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana
Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.
Á fundunum mun Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.
Nánari upplýsingar í PDF-skjali
Fundirnir verða sem hér segir:
Staður | Dagur | Tími |
Patreksfjörður, Félagsheimili | Mánudagur 19/9 | 09:00 |
Suðureyri, Félagsheimili | Mánudagur 19/9 | 14:00 |
Hólmavík, Félagsheimili | Þriðjudagur 20/9 | 09:00 |
Borgarnes, Hótel Borgarnes | Þriðjudagur 20/9 | 14:00 |
Höfn í Hornafirði, Nýheimar | Miðvikudagur 21/9 | 10:15 |
Egilsstaðir, Vonarland | Miðvikudagur 21/9 | 16:00 |
Grundarfjörður, Sögumiðstöð | Fimmtudagur 22/9 | 09:00 |
Reykjavík, Grand Hótel Reykjavík | Fimmtudagur 22/9 | 15:00 |
Húsavík, Salka | Mánudagur 10/10 | 09:30 |
Blönduós, B&S/Eyvindarstofa | Mánudagur 10/10 | 16:00 |
Akureyri, Hótel KEA | Þriðjudagur 11/10 | 10:00 |
Selfoss, Fjölheimar | Miðvikudagur 12/10 | 09:30 |
Vík í Mýrdal, Icelandair Hótel Vík | Miðvikudagur 12/10 | 15:00 |
Reykjanes, Duus hús | Fimmtudagur 13/10 | 09:30 |
Hlekkur á skráningarblað er hér að neðan. Vinsamlegast skráið þátttöku í það minnsta 3 virkum dögum fyrir fund á ykkar svæði. Hver fundur er áætlaður 2-3 tímar. Skráðir þátttakendur fá sendar ítarlegri upplýsingar um dagskrá hvers fundar og nánari fundarstað.
Skráning á kynningarfundi um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana
Bein útsending frá Akureyri
Hægt verður að fylgjast með fundinum á Akureyri 11. október í beinni útsendingu á Internetinu. Til að tengjast fundinum er farið á slóðina hér að neðan: