Málþing um gæða og umhverfismál í ferðaþjónustu
Miðvikudaginn 12. maí kl. 14-16 verður haldið málþing um gæða og umhverfismál í ferðaþjónustu á Grandhótel í Reykjavík. Hægt er að skrá sig á málþingið hér að neðan en það verður einnig sent út beint á Netinu.
Smellið hér til að fylgjast með beinni útsendingu
Flutt verða fjögur erindi og á meðal fyrirlesara er Geoff Penrose ráðgjafi og fyrrverandi framkvæmdastjóri Qualmark í Nýja Sjálandi. Erindi hans kallast "Building better tourism experiences, the Qualmark New Zealand story" og er það flutt á ensku. Að loknum framsögum segja nokkrir ábyrgir rekstraraðilar í ferðaþjónustunni reynslusögur af þátttöku sinni í gæða- og umhverfisverkefnum. Að erindunum loknum fer fram Afhending EDEN (European Destination of Excellence) verðlaunanna fyrir árið 2010.
Málþingið er haldið af Ferðamálastofu, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtökum ferðaþjónustunnar og Ferðamálasamtökum Íslands og er öllum opið.
Dagskrá:
14:00 | Sýn Ferðamálastofu á gæða- og umhverfismál Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri |
14:15 | Building better tourism experiences, the Qualmark New Zealand story Geoff Penrose, ráðgjafi og fv. framkvæmdastjóri Qualmark |
14:45 | Hvað ber að varast í gæða- og umhverfisvottun Anne Maria Sparf, Umhverfisstofnun |
14:55 | Líklega þróun í gæða- og umhverfismálum á komandi árum Stefán Gíslason, Environice |
15:05 | Fyrirspurnir |
Reynslusögur úr ferðaþjónustunni frá ábyrgum rekstraraðilum | |
15:25 | Ferðaþjónusta Bænda, Berglind Viktorsdóttir |
15:30 | Hópbílar, Pálmar Sigurðsson |
15:35 | Farfuglaheimilin, Sigríður Ólafsdóttir |
15:40 | Elding Hvalaskoðun, Rannveig Grétarsdóttir |
15:45 | Íslenskir fjallaleiðsögumenn, Einar Torfi Finsson |
15:50 | Afhending EDEN (European Destination of Excellence) verðlaunanna fyrir 2010 |
16.00 | Þinglok |
Fundarstjóri: Elías Bj. Gíslason, forstöðumaður þróunarsviðs Ferðamálastofu