Móttaka skemmtiferðaskipa - opinn fundur á vegum Cruise Iceland
18.01.2008
Skemmtiferðaskip
Þann 24. janúar n.k. kl. 13:00 munu samtökin Cruise Iceland halda opinn fund þar sem skýrsla nefndar á vegum Samgönguráðuneytis um móttöku skemmtiferðaskipa verður kynnt. Fundurinn verður haldinn í Hafnarhúsinu Tryggvagötu 17, 4. hæð.
Dagskrá:
- Inngangsorð Ágúst Ágústsson Markaðsstjóri Faxaflóahafna og stjórnarformaður Cruise Iceland.
- Skýrsla kynnt Gísli Gíslason Hafnarstjóri Faxaflóahafna og formaður nefndarinnar.
- Fyrirspurnir og umræður
Allir hjartanlega velkomnir.