Mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir íslenska ferðaþjónustu
Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ákveðið að setja í gang vinnu við mótun stefnu og framtíðarsýnar fyrir ferðaþjónustu á Íslandi í öflugu samstarfi stjórnvalda, Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og annarra hagsmunaaðila.
Í tilkynningu frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu segir:
Byggja góðan grunn
Markmiðið er að byggja góðan grunn fyrir íslenska ferðaþjónustu og stuðla að samkeppnishæfni hennar á alþjóðlegum vettvangi til lengri tíma. Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í maí á næsta ári.
Það eru tímamót í ferðaþjónustu á Íslandi. Ferðaþjónustan er nú sú atvinnugrein sem skilar þjóðarbúinu mestum gjaldeyristekjum og árleg fjölgun erlendra ferðamanna hingað til lands hefur verið um 21% undanfarin tvö ár. Vöxtur í greininni skapar mikil tækifæri en einnig áskoranir og við þeim þarf að bregðast af skynsemi.
Mikið hefur verið kallað eftir því að stjórnvöld móti stefnu og framtíðarsýn fyrir íslenska ferðaþjónustu og sterkur vilji er meðal hagsmunaaðila að koma að þeirri vinnu. Á þessum tímamótum er mikilvægt fyrir okkur Íslendinga að læra af öðrum þjóðum með tilliti til þess hvað hefur reynst vel og hvað ber að varast þegar hugað er að uppbyggingu greinarinnar.
Samstarf milli ráðuneyta
Málefni ferðaþjónustunnar ná yfir marga málaflokka. Það er því nauðsynlegt að gott samstarf sé milli ráðuneyta og annarra stjórnvalda um mótun stefnu fyrir ferðaþjónustuna. Iðnaðar- og viðskiptaráðherra lagði fram minnisblað um stefnumótunina í ríkisstjórn í morgun þar sem ráðherra óskaði eftir góðu samstarfi við önnur ráðuneyti við gerð stefnunnar. Mikilvægt er að ríkisstjórn Íslands standi einhuga að baki stefnumótuninni enda varðar hún mikla efnahagslega hagsmuni þjóðarinnar.
Stýrihópur undir formennsku ráðherra
Stýrihópur um verkefnið mun starfa undir formennsku ráðherra en þar eiga einnig sæti ferðamálastjóri, formaður SAF og framkvæmdastjóri SAF. Í næstu viku hefst svo vinna verkefnahóps sem mun halda utan um verkefnið og ráðast í viðamikla undirbúningsvinnu við að kortleggja stöðuna í íslenskri ferðaþjónustu út frá ýmsum gögnum, m.a. hagtölum og skýrslum sem þegar liggja fyrir um ferðaþjónustuna. Þá verður hugað að umgjörð ferðaþjónustunnar á Íslandi og tekið mið af þekkingu og þróun ferðaþjónustu erlendis, einkum þar sem vel hefur tekist til.
Aðkoma hagsmunaaðila
Mikilvægasti þátturinn í undirbúningsvinnunni er aðkoma hagsmunaaðila og þeirra sem þekkja til í greininni og væntingar eru um víðtækt samstarf við þá. Það eru hagsmunir allrar þjóðarinnar að vel takist til og því mun verkefnahópurinn innan skamms kynna vettvang fyrir ábendingar þeirra sem vilja koma að mótun stefnu og framtíðarsýnar íslenskrar ferðaþjónustu.
Liggi fyrir í maí
Stefnt er að því að niðurstöður vinnunnar liggi fyrir í maí á næsta ári.