Nýjar höfuðstöðvar Icelandair í N.-Ameríku
Icelandair hefur formlega tekið notkun nýjar höfuðstöðvar vestan hafs og eru þær í Boston. Hlutverk skrifstofunnar í Boston er að stýra markaðs- og sölustarfi Icelandair í Bandaríkjunum og Kanada. Þar starfa um 25 manns.
?Opnun þessarar nýju skrifstofu á þessum stað eru stór tímamót hjá Icelandair og hjá íslenskri ferðaþjónustu. Hún þjónar stærsta einstaka markaðssvæðinu okkar erlendis, um 300 milljón manna markaði, og velgengni hennar skiptir félagið og íslenskt samfélag mjög miklu. Ferðamenn sem skrifstofan nær til koma með milljarðaviðskipti inn í íslenskt efnahagslíf?, segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair í tilkynningu félagsins.
Hluti starfseminnar færist heim
Aðalskrifstofa Icelandair vestra var um árabil í Columbia í Marylandfylki. Með flutningnum þaðan nú voru gerðar breytingar á starfseminni. Hluti hennar, svo sem símsvörun, farseðlaútgáfa og bókhald var færð heim til Íslands. Aukið er við sérfræðiþekkingu á bandaríska og kanadíska ferðamarkaðinum og aukin áhersla lögð á almenn markaðs- og sölumál og viðtæka dreifingu til neytenda. ?Við flutninginn nú hafa fylgt okkur frábærir starfsmenn frá Maryland og einnig verið ráðið til starfa nýtt fólk sem við væntum mikils af. Markmiðið með starfseminni í Boston er að vekja athygli á Íslandi, fjölga farþegum okkar og ferðamönnum til landsins og til Evrópuborga jafnt og þétt. Við erum að ná góðum árangri um þessar mundir og ætlum okkur að gera enn betur?, segir Birkir Hólm einnig.
Flogið frá fimm borgum í Bandaríkjunum
Icelandair flýgur um þessar mundir til Íslands frá fimm borgum í Bandaríkjunum, þ.e. Boston, New York, Seattle, Minneapolis og Orlando, og tveimur kanadískum borgum, þ.e. Halifax og Toronto. Boston er stærsti áfangastaður Icelandair vestra með yfir 400 flug á ári. Alls koma um 60 þúsund ferðamenn með Icelandair til Íslands frá umsjónarsvæði skrifstofunnar árlega. Þessir ferðamenn skapa um 10 milljarða króna á ári í gjaldeyristekjur vegna kaupa á farmiðum og vöru og þjónustu á Íslandi.