Ráðstefna um strandmenningu
Strandmenning Íslands, staða hennar og framtíð, er viðfangsefni ráðstefnu sem haldin verður á Radisson SAS hótel Sögu þann 5. október næstkomandi. Þar eru á dagskrá fjöldi áhugaverðra fyrirlesra sem tengjast strandmenningu með einum og öðrum hætti.
Að ráðstefnunni standa Íslenska vitafélagið, Ferðamálastofa, Ferðamálasamtök Íslands, Siglingastofnun, Þjóðminjasafn Íslands, Húsafriðunarnefnd, Fornleifavernd ríkisins og Samtök Íslenskra Sjóminjasafna.
Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins, setur ráðstefnuna en síðan flytur Össur Skarphéðinsson, ráðherra byggðamála og verðandi ferðamálaráðherra, ávarp. Einar Kristinn Guðfinnsson, ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar, flytur einnig ávarp síðar á ráðstefnunni. Efni ráðstefnunnar skiptist í 4 meginþætti og innan hvers um sig eru fluttir nokkrir fyrirlestrar.
- Auður og atvinna við haf og strönd
- Hvað geta Íslendingar lært af nágrönnum sínum?
- Að virða sinn menningararf
- Tækifæri bragðlaukanna
Ráðstefnugjald:er 6000 krónur og innifalið eru ráðstefnugögn, hádegisverðarhlaðborð og kaffi. Skráning á ráðstefnuna er hér fyrir neðan Nánari upplýsingar: 466 1266 eða 695 1266
Dagskrá ? prentvæn útgáfa (PDF)
Dagskrá:
09:00 Innritun og afhending gagna
09:30 Setning ráðstefnu: Sigurbjörg Árnadóttir, formaður Íslenska vitafélagsins
09:40 Ávarp: Össur Skarphéðinsson, ráðherra byggðamála og verðandi ferðamálaráðherra
Auður og atvinna við haf og strönd
Umræðustjóri: Ragnhildur Sigurðardóttir, Landbúnaðarháskólanum Hvanneyri
09:50 | Fornminjar við strendur landsins - staða og tækifæri Agnes Stefánsdóttir, Fornleifavernd ríkisins |
10:05 | Vitar sem hluti íslenskrar strandmenningar Magnús Skúlason, Húsafriðunarnefnd ríkisins |
10:20 | Strandmenningarbærinn Húsavík. Hörður Sigurbjarnarson, framkvæmdastjóri Norður-Siglingar, Húsavík |
10:35 | Pallborðsumræður um stöðuna. Fyrirlesarar, ásamt Ragnari Edwardssyni, minjaverði Vestfjarða og Elíasi Bj. Gíslasyni, Ferðamálastofu |
11:00 Kaffihlé
Hvað geta Íslendingar lært af nágrönnum sínum?
Umræðustjóri: Guðrún Þóra Gunnarsdóttir, Háskólanum á Hólum
11:20 | Staða og stefna strandmenningar í Noregi Geir Tvedt, ráðgjafi hjá Riksantikvaren |
11:45 | Världsarvet Höga Kusten Ernst Thurdin, Kramfors kommun í Svíþjóð |
12:15 | Pallborðsumræður: Hvað geta Íslendingar lært af nágrönnum sínum? Fyrirlesarar, ásamt Pétri Rafnssyni, Ferðamálasamtökum Íslands, Valdimar Harðarsyni, landlagsarkitekt og Öldu Davíðsdóttur, Patreksfirði |
12:35 Hádegishlé
13:20 Ávarp: Einar Kristinn Guðfinnsson, ráðherra sjávarútvegs og
landbúnaðar.
Að virða sinn menningararf
Umræðustjóri: Arnheiður Hjörleifsdóttir, Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi
13:30 | Sjóminjasöfn ? Vettvangur íhaldssemi og nýsköpunar Örlygur Kristfinnsson, Síldarminjasafninu á Siglufirði |
13:45 | Þjóðtrú sjómanna Hlíf Gylfadóttir, mannfræðingur |
14:00 | Kveðið við haf og strönd Gunnsteinn Ólafsson, tónlistarmaður |
14:15 | Pallborðsumræður: Hvernig er best að koma arfleiðinni til skila? Fyrirlesarar, ásamt Þorvaldi Friðrikssyni, fréttamanni og Guðmundi Páli Ólafssyni, rithöfundi |
14:45 Kaffihlé
Tækifæri bragðlaukanna
Umræðustjóri Laufey Haraldsdóttir, Háskólanum á Hólum
15:15 | Súrt og kæst Guðmundur Guðmundsson, matvælafræðingur |
15:30 | Úr faðmi hafsins Gunnar Karl Gíslason, matreiðslumeistari Vox restaurant |
15:45 | Pallborðsumræður: Tækifæri bragðlaukanna Fyrirlesarar, ásamt Guðrúnu Hallgrímsdóttur frá Matur, saga, menning og Pétri Ágústssyni, útgerðarstjóra Sæferða i Stykkishólmi |
16:15 Samantekt: Guðrún Helgadóttir, Háskólanum á Hólum
16:30 Ráðstefnuslit