Skráning hafin á Ferðatæknimótið í Ferðaþjónustuvikunni
Skráning hafin á Ferðatæknimótið sem Ferðamálastofa og Íslenski ferðaklainn í samstarfi við EDIH - Miðstöð stafrænnar nýsköpunar, halda þann 15. janúar næstkomandi kl. 12:30 á Hótel Natura, sem hluta af Ferðaþjónustuvikunni.
Stefnumót fyrirtækja um lausnir á sviði ferðatækni og stafrænna tækifæra í ferðaþjónustu
Ferðatæknimót leiðir saman fyrirtæki, frumkvöðla og aðra úr atvinnulífinu á örstefnumótum. Ferðatæknimót er vettvangur fyrir fyrirtæki sem leitast eftir/bjóða upp á ráðgjöf og lausnir, á sviði ferðaþjónustu. Hér er átt við hverskyns lausnir sem styðja við ferðatækni og aðra starfræna þróun innan ferðaþjónustunnar.
Markmið viðburðarins eru að:
- Leiða saman ferðaþjónustufyrirtæki og tæknifyrirtæki
- Stuðla að stafrænni þróun og markvissri notkun á tækni í rekstri ferðaþjónustufyrirtækja, öllum til hagsbóta
- Hvetja ferðaþjónustufyrirtæki til að kynna sér þær lausnir og tækni sem eru í boði
- Bjóða tæknifyrirtækjum upp á vettvang til að kynna sínar lausnir og þjónustu.
Dagskrá
- 12:30 Húsið opnar
- 12:45 Stefnumót hefjast
8x15 mínútna fundir fara fram á 2klst. - 14:45 Dagskrá lýkur
Skráning:
Skráning fer fram á sérstökum vef viðburðaris og þar eru allar nánari upplýsingar.
EDIH-IS er samstarfsaðili að þessum viðburði en EDIH-IS er samstarfsvettvangur sem hefur það að markmiði að styðja við stafræna nýsköpun og þróun hjá íslenskum fyrirtækjum og opinberum aðilum.