Skýrsla um sjávartengda ferðaþjónustu á Vestfjörðum
Rannsókna og fræðasetur HÍ á Vestfjörðum hefur birt skýrsluna Sjávartengd ferðaþjónusta á Vestfjörðum 2010 sem unnin var í sumar fyrir Rannsókna- og nýsköpunarsjóð Vestur-Barðastrandasýslu. Í samantekt í skýrslunni segir:
Flestir þeir ferðaþjónar en tóku þátt í könnuninni eru að nýta haf og strandsvæði á einhvern hátt í sínum rekstri. Þá töldu flestir að það væru ónýtt tækifæri í nýtingu haf- og strandsvæða til ferðaþjónustu á Vestfjörðum og að leggja ætti meiri áherslu á haf- og strandtengda ímynd þegar kemur að markaðssetningu Vest! fjarða sem ferðamannastaðar. Það er því athyglivert að einungis 65% af ferðaþjónum nefndu einhver orð tengd hafi og strönd þegar beðnir að nefna orð sem þeir telja að tengist ímynd Vestfjarða sem ferðamannastaðar og einungis um 25% af heildafjölda nefndra orða mátti tengja haf og strandsvæðum. Mikið fleiri telja helstu ferðamanna segla Vestfjarða vera tengda haf og strönd en hér nefna allir einhver orð sem tengjast þeim svæðum og nær 60% heildarfjölda nefndra orða tengjast haf og strandsvæðum. Þeir ferðaseglar sem eru nefndir endurspegla líklega staði og svæði sem eru vinsæl meðal ferðamanna í dag. Það virðist því vera ákveðið misræmi á milli bæði nú! ;verandi nýtingar og framtíðarsýnar f! erða þjóna og þeirrar ímyndar sem ferðaþjónar telja Vestfirði sem ferðamannastað hafa.
Skýrsluna í heild sinni er hægt að nálgast á heimasíðu Ferðamálasamtaka Vestfjarða.