Snæfellsnes fyrsta umhverfisvottaða samfélagið í Evrópu
Síðastliðinn mánudag tóku sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi og Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull á móti skjölum til staðfestingar því að hafa hlotið umhverfisvottun frá Green Globe vottunarsamtökunum. Ísland getur þar með státað sig af því að vera fyrsta landið í Evrópu með umhverfisvottuð samfélög en fram til þessa hefur aðeins þremur öðrum samfélögum í heiminum tekist að ná vottun.
Green Globe eru einu vottunarsamtökin sem votta starfsemi heilla samfélaga. Viðmið og staðlar þeirra byggja á sömu hugmyndafræði og Staðardagskrá 21 og kemur Green Globe vinna sveitarfélaganna á Snæfellsnesi því í stað Staðardagskrárvinnu þeirra. Með því að ganga inn í vottunarferli Green Globe hefur Snæfellsnes þó stigið skrefinu lengra, þar sem umhverfisvinnan er nú reglulega metin af óháðum þriðja aðila.
Margir lagt hönd á plóg
Í fréttatilkynningu segir að fjölmargir hafi lagt hönd á plóg til að stíga þetta mikilvæga skref í sögu umhverfismála á Íslandi. Vottunarverkefnið hófst formlega árið 2003 fyrir tilstilli þeirra hjóna Guðlaugs heitins og Guðrúnar Bergmann, sem unnu ötullega að verkefninu frá upphafi, og hefur sömuleiðis notið ráðgjafar Stefáns Gíslasonar, umhverfisstjórnunarfræðings hjá Umís í Borgarnesi. Starfmenn Náttúrustofu Vesturlands hafa tekið þátt í stefnumótun og stjórn verkefnisins nánast frá upphafi og starfsmaður þess, Þórunn Sigþórsdóttir, er jafnframt starfsmaður Náttúrustofunnar. Einnig hafa sveitarstjórar og sveitarstjórnir á Snæfellsnesi sýnt mikla framsýni með þátttöku í verkefninu og er þá ógetið fjölda annarra sem stuðlað hafa að framgangi þess.
Viðstaddir hátíðlega athöfn í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði voru m.a. forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Alþingis og 1. þingmaður Norðvesturkjördæmis, Sturla Böðvarsson, þingmenn, sveitarstjórnafólk og fjöldi annarra gesta. Sjá www.nesvottun.is