Stefnumótun ferðaþjónustu í Eyjafirði
Föstudaginn 6. nóvember verður haldinn vinnufundur til að ræða vöruþróun og framtíðarsýn ferðaþjónustu í Eyjafirði. Markmið fundarins er að kynna aðferðafræði vöruþróunar og stefnumótunar sem byggir á landfræðilegum upplýsingakerfum og taka fyrstu skrefin í þá átt með því að móta vinnuhópa.
Að fundinum standa Rannsóknamiðstöð ferðamála í samstarfi við Ferðamálastofu, Útflutningsráð, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnumáladeild Dalvíkurbyggðar og Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar. Fundurinn verður haldinn í Bergi, menningarhúsi Dalvíkur (6. Nóvember) kl. 9:00-13:00. Fundurinn er öllum opinn og öllum að kostnaðarlausu. Áhugasamir geta skráð sig hjá Eyrúnu hjá Rannsóknamiðstöð ferðamála á: ejb@unak.is fyrir föstudaginn 30. október 2009.
Allir þjónustuaðilar er hvattir til að mæta og taka þátt og hafa áhrif á framtíðarsýn ferðaþjónustu í Eyjafirði.
Sjá nánari upplýsingar á www.rmf.is