Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu
Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu er nám sem Háskólinn í Reykjavík býður upp á og er sérsniðið að þörfum stjórnenda í ferðaþjónustu. Það hefst 20. nóvember en áhersla er lögð á hagnýta færni sem hægt að virkja í framkvæmd strax.
Markmið
Markmið námsins er að efla og styrkja stjórnendur í ferðaþjónustu í daglegum áskorunum sinna starfa í gegnum sannreyndar og hagnýtar leiðir.
Kennt í 4 lotum
Námið samanstendur af 4 lotum sem kenndar eru með fjögurra vikna millibili. Gert er ráð fyrir verkefnavinnu í hverri lotu en námið veitir ekki einingar og er próflaust. Einnig er boðið upp á að sækja stakar lotur úr námslínunni. Loturnar eru:
- Fjármál og áætlanagerð í ferðaþjónustu
20. nóvember 2013 - Markvisst markaðsstarf í ferðaþjónustu
22. janúar 2014 - Forysta og árangursmiðað starfsumhverfi
19. febrúar 2014 - Mannauðsstjórnun og ráðningar í ferðaþjónustu
12. mars 2014
Kennsluaðferðir
Námskeiðin eru byggð upp á fyrirlestrum, hópvinnu og umræðum. Kennsluaðferðir eru í senn fjölbreyttar og hagnýtar og kalla á virka þátttöku nemenda.