Tekjukönnun SAF 2007
Samtök ferðaþjónustunnar hafa birt samantekt á niðurstöðum úr tekjukönnun SAF og Hotelbenchmark fyrir árið 2007. Ýmislegt athyglisvert kemur í ljós í samanburði við tölur frá 2006.
Hótelherbergjum í Reykjavík hefur fjölgað úr 1586 í 1726 herbergi. Fjölgunin hefur hins vegar bara verið á fjögurra stjörnu hótelunum. Þar fjölgaði herbergjum úr 865 árið 2006 í 1004 herbergi árið 2007. Herbergjafjöldi á þriggja stjörnu hótelunum er hins vegar sá sami milli ára eða 683 herbergi. Á landsbyggðinni hefur hótelherbergjum fjölgað úr 338 í 350 milli ára.
Hótelnýting í Reykjavík hefur dregist lítillega saman og raunsamdráttur hefur orðið á 3 stjörnu hótelunum um 1.7%, því herbergjafjöldinn hefur staðið í stað. Hótelnýting á fjögurra stjörnu hótelunum hefur dregist saman um 3,4% milli ára en herbergjunum á sama tíma fjölgað um 139 herbergi.
Verðið á hótelherbergjum í Reykjavík hefur hækkað um 8,5% milli ára og tekjur fyrir framboðið herbergi hækkað um 5,7%.
Á landsbyggðinni hefur verðið hækkað um 18,3% og tekjur fyrir framboðið herbergi aukist um 23,5%.
Meðalverð fyrir hótelherbergi í Reykjavík var 9.276 krónur fyrir árið 2006 en fyrir árið 2007 var meðalverðið orðið 10.068. Meðalverð fyrir hótelherbergi á landsbyggðinni var 7.866 krónur árið 2006 en meðalverðið var 9.306 krónur á árinu 2007.