Fara í efni

Umsóknarfrestur um NATA-styrki að renna út

NATA

Við minnum að að frestur fyrir næstu umsóknir um styrki frá NATA, samstarfssamningi Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði ferðamála, rennur út á miðnætti 1. september. Sótt er um á vef NATA á rafrænum eyðublöðum sem þar eru.

Styrkir til tvenns konar verkefna

Í samræmi við það sem samningur landanna kveður á um er hægt að sækja um styrki til tvennskonar verkefna. Annars vegar verkefna í ferðaþjónustu og hins vegar ferðastyrki, t.d. vegna skólahópa, íþróttahópa eða menningarverkefna.

Styrkir til verkefna í ferðaþjónustu

Allir sem starfa að eflingu ferðaþjónustu á milli landanna þriggja geta sótt um styrk að hámarki 100.000 danskar krónur, eða að hámarki 50% þeirra kostnaðarliða sem styrktir eru. Skulu umsóknir fela í sér samstarf milli einstaklinga, stofnana eða fyrirtækja í tveimur af löndunum þremur hið minnsta. Ekki eru veittir styrkir vegna launakostnaðar, ráðgjafar, útgáfu efnis eða vefsíðugerðar.

Sækja má um aðstoð á eftirfarandi sviðum ferðaþjónustu.

  • Til markaðssetningar.
  • Til nýsköpunar- og – vöruþróunar.
  • Til að mynda tengslanet og miðla þekkingu.
  • Til gæða- og umhverfismála innan ferðaþjónustunnar.

Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi þátta:

  • Verkefnishugmyndar og gæða umsóknarinnar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
  • Nýnæmis og nýsköpunargildis verkefnisins
  • Markaðstengingar
  • Kostnaðaráætlunar og annarrar fjármögnunar
  • Samfélagslegs gildis

Styrkir vegna kynnis- og námsferða

Eitt af markmiðum samstarfssamnings um ferðamál á milli Íslands, Grænlands og Færeyja er að auka samskipti og fjölga heimsóknum á milli landanna þriggja. Hér með eru auglýstir ferðastyrkir til þeirra sem vinna að samstarfsverkefnum sem varða tvö af löndunum þremur hið minnsta. Styrkjunum er einvörðungu ætlað að standa straum af ferðakostnaði, ekki gistingu eða uppihaldi. Hámarksstyrkur á hvern einstakling er  1.000 danskar krónur vegna ferðalaga milli Íslands og Grænlands annars vegar og Íslands og Færeyja hins vegar.

Sækja má um styrk til kynnis- og námsferða eftirtaldra:

  • Skóla
  • Íþróttahópa
  • Tónlistarhópa
  • Annars menningarsamstarfs

Við mat á umsóknum verður tekið tillit til eftirfarandi atriða:

  • Verkefnishugmynd
  • Gæði umsóknar. Ófullgerðar umsóknir verða ekki teknar til greina.
  • Gagnkvæmni og tengslamyndun
  • Kostnaðaráætlun, fjármögnun

Í ár leggur stjórn NATA sérstaka áherslu á umsóknir sem tengjast sjálfbærri ferðamennsku.

Hvar er sótt um?

Allar umsóknir þurfa að berast með rafrænum hætti á þar til gerðum umsóknarblöðum sem finna má á vef NATA. Vefurinn og umsóknarformin eru bæði á dönsku og ensku.

Skilafrestur

Lokafrestur til að skila umsókn er á miðnætti (GMT) 1. september 2015. Umsóknir eða fylgigögn sem berast eftir þann tíma verða ekki tekin gild. Niðurstaða stjórnar NATA um úthlutun mun liggja fyrir 8. október 2015. Athugið að verkefni með áætluð verklok fyrir 8. október eru ekki styrkhæf og sama á við um feðir sem lýkur fyrir þann tíma.

Næsti umsóknarfrestur 

Um er að ræða seinni úthlutun af tveimur á árinu 2015. Áætlað er að umsóknarfrestur vegna fyrri úthlutunar 2016 verði í  janúar/febrúar 2016 en það verður auglýst sérstaklega síðar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar gefur starfsmaður NATA, Birita Johansen, sími 00 298 30 9900 eða í gegnum netfangið birita@industry.fo