A systemic approach to assessing the environmental impacts of tourism and the attractiveness of tourist destinations
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | A systemic approach to assessing the environmental impacts of tourism and the attractiveness of tourist destinations |
Lýsing | Hér eru kynntar niðurstöður rannsóknaverkefnis undir stjórn Rannveigar Ólafsdóttur, prófessors í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, og eru meðal þeirra verkefna sem Ferðamálastofa ákvað á árinu 2014að láta ráðast í, með hliðsjón af mikilli fjölgun ferðafólks og álags sem af henni hefur skapast. Skýrslan nefnist „A systemic approach to assessing the environmental impacts of tourism and the attractiveness of tourist destinations“ eða „Áhrif innviða á þróun ferðamannastaða á hálendinu í ljósi kerfisgreiningar.“ Meðhöfundur Rannveigar er Dr. Hörður V. Haraldsson, sérfræðingur við náttúrufræðistofnun Svíþjóðar. Líkt og fram kemur í skýrslunni þá einkennist samband ferðamennsku og umhverfis af flóknu samspili margra þátta, sem með aukinni uppbyggingu ferðaþjónustu getur haft töluverð umhverfisáhrif og smám saman breytt upplifun ferðamanna, og að lokum breytt tegund þeirra ferðamanna sem velja að heimsækja ákveðin svæði. Nauðsynlegt er efla þekkingu og skilning á eðli þeirra breytinga sem hvert stig uppbyggingar innviða og þjónustu hefur á hvort tveggja ferðamennsku og umhverfis svæða. Til að greina breytingar á ásýnd umhverfis er stuðst við kerfisgreiningu. Kerfisgreining er sú aðgerð að greina ferli til að skilja orsakasamhengi þess og uppbyggingu. Breytur eru flokkaðar og settar upp í fræðilegt hugrænt líkan, svokallað orsakalíkan (e. causal loop diagram). Allir áhrifaþættir kerfisins eru síðan skilgreindir til að fá heildaryfirlit yfir vægi allra þátta. Á þann hátt er unnt að auðkenna og greina mikilvægustu áhrifaþætti hvers ferlis. Markmið kerfisgreiningar er þannig að auka skilning á samspili allra áhrifaþátta og auðvelda skilning á orsökum og afleiðingum. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Rannveig Ólafsdóttir |
Nafn | Micael Runnström |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Umfang og áhrif |
Útgáfuár | 2015 |
Útgefandi | Ferðamálastofa, Háskóli Íslands |
ISBN | 978-9979-9524-9-7 |
Leitarorð | þolmörk, hálendið, hálendi, kerfisgreining, innviðir, álag, umhverfisáhrif, uppbygging, gönguleiðir, gönguleið, aðdráttarafl, Rannveig Ólafsdóttir, Hörður V. Haraldsson |