Lýsing |
Vegna mikillar fjölgunar ferðamanna hér á landi og þess álags sem af því skapast hafa spurningar vaknað um hvort ferðamenn séu nú þegar of margir á vinsælustu áfangastöðum landsins, þ.e. hvort þolmörkum þeirra sé náð. Í ljósi þessa óskaði Ferðamálastofa eftir því við Háskóla Íslands að rannsaka fjölda ferðamanna og viðhorf þeirra á átta fjölförnum áfangastöðum á Suður‐ og Vesturlandi. Þeir eru Djúpalónssandur, Geysir, Hakið á Þingvöllum, Hraunfossar, Húsadalur í Þórsmörk, Jökulsárlón, Seltún og Sólheimajökull.
Í þessari áfangaskýrslu er aðferðafræðinni lýst sem beitt var við gagnasöfnun sumarið 2014, bæði hvað varðar talningar á ökutækjum og dreifingu spurningalista til ferðamanna. Aðferðafræði við úrvinnslu gagnanna er einnig lýst. |