Árstíðasveiflur í ferðaþjónustu - Ísland í samanburði við valda áfangastaði
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Árstíðasveiflur í ferðaþjónustu - Ísland í samanburði við valda áfangastaði |
Lýsing | Verulega hefur dregið úr árstíðasveiflu í íslenskri ferðaþjónustu síðasta áratug. Ísland hefur á sama tíma farið frá því að vera það Norðurlandanna sem er með mesta árstíðasveiflu, til þess að vera það næststöðugasta. Þá er árstíðasveiflan hér á líku róli og í mörgum Evrópulöndum sem við berum okkur gjarnan saman við. Má í raun segja að hugmyndin um hina sveiflukenndu íslensku ferðaþjónustu sé nú orðin mýta, a.m.k. í samanburði við næstu þjóðir.
Þetta er meðal áhugaverðra niðurstaðna sem Jóhann Viðar Ívarsson hjá Ferðamálastofu kynnti á hádegisfyrirlestri í gær en hann hefur tekið saman og birt áhugaverðar niðurstöður um þetta efni í nýrri skýrslu. Mælikvarðinn sem Jóhann notar er svokallað sveifluhlutfall gistinátta á hótelum. Með hlutfallinu er mælt hversu umfangsmikill mánuðurinn með flestar gistinætur er í hlutfalli við meðaltalið á mánuði fyrir árið í heild. Hlutfallið getur þannig verið á bilinu 1 (ef sami gistináttafjöldi er í öllum mánuðum ársins) til 12 (ef allar gistinætur ársins eru í einum mánuði).
Nær jafnvægi 2017Á myndinni hér til hliðar má sjá hversu mjög árstíðasveiflan minnkaði á sex ára tímabili, frá 2010 til 2017. Sveifluhlutfallið virðist ná jafnvægi í 1,5 frá og með árinu 2017 og hafði þá lækkað um 44% frá 2010. Vart þarf að taka fram að árinu 2020 er sleppt vegna ódæmigerðra aðstæðna.
Næststöðugast NorðurlandannaÍsland hefur farið úr sveiflukenndustu ferðaþjónustu Norðurlanda fyrir áratug í þá stöðugustu ásamt Finnum og eru þessar þjóðir sér á báti hvað stöðugleika varðar. Norsk ferðaþjónusta er með 40% hærra hlutfall en sú íslenska og dönsk og sænsk 20% hærra.
|
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Jóhann Viðar Ívarsson |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Umfang og áhrif |
Útgáfuár | 2021 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
ISBN | 978-9935-522-11-5 |
Leitarorð | sveiflur, afkoma, árstíðasveiflur |