Skýrsla ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra um þolmörk ferðamennsku
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Skýrsla ferðamála-, iðnaðar-, og nýsköpunarráðherra um þolmörk ferðamennsku |
Lýsing | Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, lagði í apríl 2018 fram á Alþingi skýrslu um þolmörk ferðamennsku. Í skýrslunni er sett fram heildstæð úttekt á niðurstöðum rannsókna á sviði þolmarka ferðamennsku á Íslandi. Lögð er fram tillaga um mótun verkferils sem getur gert stjórnun áfangastaða skilvirkari og þannig stuðlað að sjálfbærri þróun ferðaþjónustu hér á landi. Þær þolmarkarannsóknir sem hafa verið framkvæmdar sýna að staða mála er mjög mismunandi eftir stöðum og landshlutum. Þolmörkum af ýmsu tagi hefur til dæmis nú þegar verið náð á ákveðnum stöðum fyrir töluverðu síðan, einkum á Suðurlandi þar sem álagið vegna fjölda ferðamanna er mest. Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða á undanförnum árum til bættrar dreifingar ferðamanna yfir árið og um landið. Fjölmörg verkefni og áætlanir eru enn fremur í smíðum sem miða að bættri stýringu og skipulagi m.t.t. ferðamennsku. Skýrslan sýnir að nota má hugtakið þolmörk til að byggja undir markvissa ákvarðanatöku um skipulag og stýringu á áfangastöðum ferðamanna, með því að móta verkferil byggðan á vísindalegum grunni þolmarkarannsókna. |
Skráarviðhengi |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Umfang og áhrif |
Útgáfuár | 2018 |
Útgefandi | Alþingi |
Leitarorð | þolmörk, þolmörk ferðamennsku, umhverfi, umhverfismál, félagsleg þolmörk, innviðir, vistkerfi, áfangaskýrsla, viðhorf, upplifun, ráðherra, skýrsla ráðherra, alþingi |