Þolmörk ferðamanna á átta vinsælum ferðamannastöðum á Suður- og Vesturlandi sumarið 2014
Nánari upplýsingar | |
---|---|
Titill | Þolmörk ferðamanna á átta vinsælum ferðamannastöðum á Suður- og Vesturlandi sumarið 2014 |
Lýsing | Í skýrslunni eru kynntar meginniðurstöður viðhorfskönnunar sem gerð var meðal ferðamanna á átta vinsælum náttúruskoðunarstöðum á Suður- og Vesturlandi sumarið 2014. Ferðamálastofa fjármagnaði rannsóknina sem stýrt var af dr. Önnu Dóru Sæþórsdóttur, dósent í ferðamálafræði við Háskóla Íslands. Ástæða þess að Ferðamálastofa ákvað að ráðast í verkið var að vegna mikillar fjölgunar ferðamanna hér á landi og þess álags sem af henni skapast hafa spurningar vaknað um hvort ferðamenn séu nú þegar of margir á vinsælustu áfangastöðum landsins. Þá voru þolmörk einn þeirra þátta sem greining Ferðamálastofu haustið 2013 leiddi í ljós að hagsmunaaðilar töldu brýnast að ráðast þyrfti í. Staðirnir sem valdir voru til skoðunar voru: Djúpalónssandur, Geysir, Hakið á Þingvöllum, Hraunfossar, Húsadalur í Þórsmörk, Jökulsárlón, Seltún og Sólheimajökull. Spurningalistum er dreift á þremur tímabilum; sumar (miður júní til ágúst 2014), haust (lok september til byrjun nóvember 2014) og vetur (febrúar til mars 2015). Í þessari skýrslu birtast frumniðurstöður könnunarinnar sem gerð var meðal sumargesta. Heildarniðurstöður verkefnisins verða birtar í lok árs 2015 en þá verður búið að greina hvort um hvort tölfræðilega marktækur munur sé á milli árstíða, staða og eftir ýmsum öðrum þáttum. |
Skráarviðhengi |
Höfundar | |
---|---|
Nafn | Anna Dóra Sæþórsdóttir |
Flokkun | |
---|---|
Flokkur | Umfang og áhrif |
Útgáfuár | 2015 |
Útgefandi | Ferðamálastofa |
ISBN | 978-9979-9524-5-9 |
Leitarorð | þolmörk, þolmörk ferðamennsku, Djúpalónssandur, Geysir, Hakið á Þingvöllum, Hraunfossar, Húsadalur í Þórsmörk, Jökulsárlón, Seltún, Sólheimajökull, umhverfi, umhverfismál, félagsleg þolmörk, innviðir, vistkerfi, áfangaskýrsla, viðhorf, upplifun |